Um vefinn
Þessi vefur er alls ekki hugsaður sem blogg-vefur, enda má sjá að ég er ekki duglegur að skrifa nýjar færslur. Mig langaði bara að halda úti svona "on-line portfolio/CV" og hvað er betra en vefur til þess?
Einnig má finna hér tengla á ýmislegt sniðugt sem mér finnst vert að benda á og tengla yfir á vefi sem ég skoða gjarnan.
Tæknilega hliðin:
Vefurinn er uppsettur í vefumsjónarkerfinu LiSA .Net frá okkur í Innn. Hann keyrir á Microsoft .Net framework 1.1 á IIS 5 vefþjóni á 733MHz Dell Optiplex GX110 tölvu sem malar ljúflega inní tölvuskápnum heima hjá mér.
Vefurinn byggir á töflulausu XHTML og eru CSS stílsnið notuð alfarið við útlit. Auk þess er notað merkingarbært HTML. Þetta ætti að tryggja mjög gott aðgengi fyrir þá sem nota frumstæða vafra, svosem lófatölvur, farsíma, skjálesara o.sv.frv.