Vodafone Download Gauge

Lítið forrit fyrir þá sem eru með Internetáskrift í gegnum Vodafone * og vilja geta fylgst vel með erlendu gagnamagni sínu.

Forritið situr í "notification area" og með því að fara með músina yfir táknmyndina má sjá gagnamagnið sem búið er að sækja.

Með því að tvísmella á táknmyndina kemur eftirfarandi gluggi upp þar sem má sjá nánari upplýsingar og breyta því hversu ört forritið sækir upplýsingar og hversu mikið erlent gagnamagn maður fær frítt á hverjum mánuði.

Sækja forritið!

(19kb Zip-skrá. Unzippið í hvaða folder sem er og keyrið forritið.  Best að setja shortcut í "Startup" möppuna svo að það keyri í hvert sinn sem Windows er ræst.

 

* Gæti verið að þetta virki líka fyrir þá sem eru með Internetáskrift hjá fyrirtækjum tengdum Vodafone. Ef þú getur séð upplýsingar um gagnamagn þitt á þessari slóð hér: http://www.vodafone.is/internet/adsl/gagnamagn eða hér: http://www.tal.is/index.aspx?GroupId=771 þá geturðu notað þetta forrit.

Ef þú getur séð gagnamagn á www.vodafone.is, þá seturðu ISP sem Vodafone, ef þú getur séð gagnamagnið þitt á www.tal.is, þá seturðu ISP sem Tal.




Leturstærðir

#
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Innn